Vatnslokamótorar AVM 321S

Vatnslokamótor fyrir stærri vatnsloka.

Vörunúmer: AVM 321S, 322S Flokkar: ,

Lýsing

Vatnslokamótorar , fyrir stærri vatnsloka.

AVM 321S hentar fyrir Sauter loka : VUD, VUE, VUN, BUD, BUE, BUN.

AVM 322S hentar fyrir Sauter loka : V6R, VQD, VQE, VUG, VUP, VUS, B6R, BQD,
BQE, BUG, BUS.

AVM 321S er fyrir 4 mm keyrslu á loka og AVM 322S er fyrir 20 mm keyrslu á loka.

AVM 321S  og AVM 322S vatnslokamótorar eru með svokallaðri SUT stýringu. Hún er þannig uppbyggð að hægt er að velja á milli þess að hafa þá 2 punkta, 3 punkta eða 0-10v stýringu, auk þess er hægt að velja hvort lokinn opnar línulega eða hlutfallslega.

Þessir vatnslokamótorar eru einnig með 4 – 20 mA stýringu.

Þegar vatnslokamótor er spennusettur byrjar hann á því að keyra enda í enda, í leiðinni mælir hann vegalendina sem hann þarf að keyra og festir það inni í mynni þannig að hann er aldrei að erfiða í full opinni eða full lokaðri stöðu, til viðbótar við þetta reynir hann lokuðu stöðuna reglulega, til þess að vera viss um að hann loki fullkomlega, þar sem hún breytist alltaf lítillega.

Vatnslokamótorarnir eru 1000 Nm.

Bæklingur

AVM 321S

Tækniupplýsingar

Fitting instructions